100 atriði um mig.
1. Ég heyti Ragnar Eyþórsson (kallaður Raggi (eða Iceland í Kanada)).
2. Ég var skírður í höfuðið á afa mínum í móður ætt.
3. Foreldrar mínir eru Eyþór Ólafsson og Anna Eyvör Ragnarsdóttir.
4. Systkini mín eru Sigríður Ásta (35 (Sassa)), Ólafur Hrannar (32 (Óli)), Sigrún (23).
5. Ég er fæddur 26. Október 1978 (25 ára) á fæðingarheimili Reykjavíkur.
6. Ég bjó Fossvoginum áður og eftir að ég bjó í U.S.A.
7. Ég bjó í U.S.A. 1983-1987 og bjó á 5 stöðum þar.
8. Ég flutti að heiman otóber 2001 í Grófina 1, besta íbúðin á landinu.
9. Ég er að læra kvikmyndagerð (3 ár) í Sheridan College í Oakville, Ontario, Canada.
10. Ég var áður á Kvistaborg, Fossvogsskóla, Réttarholtsskóla, Menntaskólanum í Hamrahlíð, tvo mánuði í Háskóla Íslands og eitt námskeið hjá Kvikmyndaskóla Íslands.
11. Ég hef starfað hjá Skógrækt Reykjavíkur, Laugardalslaug, Álverinu í Straumsvík, Zink Margmiðlun, Hans Petersen og E.Ólafsson ehf.
12. Ég hef aldrei ferðast meira um Ísland en austur að Kirkjubæjarklaustri og að Mývatni.
13. Ég hef ferðast til U.S.A., Kanada, Bretlands, Írlands, Danmerkur, Lúxemborg, Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, San Marínó, Vatíkansins, Spánar og Portúgals.
14. Ég er sporðdreki en er alveg meinlaus.
15. Ég er ekki hjátrúarfullur þó svo ég hef gaman að fylgja samt reglunum.
16. Ég trúi rosalega mikið á heppni og að jákvætt skap eykur á hana.
17. Ég ætlaði að verða (í réttri röð): Vísindamaður, steingervingarfræðingur, stjörnufræðingur, líffræðingur, efnafræðingur, eðlisfræðingur, læknir, sálfræðingur, áhættuleikari, tölvunarfræðingur, tölvuverkfræðingur, kvikmyndagerðamaður.
18. Leikfanga tímabil mín (í réttri röð): He-Man, Transformers, GI-Joe, Mask, Karate Kid, Lego, Transformers, GI-Joe.
19. Ég er Nintendo maður og hef átt upprunalegu tölvuna og Super Nintendo.
20. Nánustu vinir í stafrófsröð (Durgarnir): Gunni, Hjalti, Indy, Ingi, Jón, Óli, Robbi, Runi, Sæi, Þórir.
21. Ég byrjaði að drekka 16 ára á fyrst árshátíð minni í M.H.
22. Ég missti sveindóminn 28. júní 1996.
23. Ég hef nokkru sinnum verið ástfanginn, átt þrjár kærustur en aðeins elskað tvær þeirra.
24. Ég var eitt sinn í sambúð í 2 ár.
25. Ég átti eitt sinn hund (Kókó, dó 10 ára gömul úr krabbameini) og eðlu (Eðlingur dó eftir tvo daga, Eðlingur II dó eftir 2 vikur).
26. Ég drekk Faxi í dós því hann er ódýrastur en einnig mjög góður.
27. Ég myndi kjósa drekka Carlsverg í gleri þegar ég hef ekki áhyggjur af peningum.
28. Ég er mjög slæmur með peninga og hef lenti í fleiri hundrað þúsund krónu skuldum.
29. Ég er á svörtum lista hjá VISA og Eurocard og má ekki fá kort hjá þeim næstu 10 árin.
30. Ég reyki ekki en hef náttúrulega prófað nokkrar sígarettur um ævina ásamt vindlum.
31. Ég nota aldrei fíkniefni.
32. Ég hef aldrei hnupplað einhverju úr búð.
33. Ég hef aldrei svindlað á prófi.
34. Ég hef lent tvisvar í árekstur við annan bíl, bakkað á staur og runnið út af á staur.
35. Ég hef aldrei lamið neinn.
36. Ég hef fengið nokkur gat á hausinn, brotið á mér puttann og rotast og fengið heilahristing.
37. Ég hef verið skorinn upp á augunum og báðum löppunum.
38. Ég hef ekkert keppnisskap í hópíþróttum og spila ánægjunar vegna.
39. Ég horfi aldrei á íþróttir í sjónvarpinu (nema H.M. í fótbolta ef margir eru og drekkandi bjór (en fylgist ekki mikið með samt)).
40. Ég fylgist með Friends, Simpsons og Malcolm In The Middle.
41. Uppáhaldsþættir eru samt Family Guy, Seinfeld og Monty Pythons Flying Circus.
42. Uppáhalds leikstjóri er Woody Allen.
43. Uppáhalds hljómsveitin er Bítlarnir.
44. Hlusta mest á Led Zepplin, U2, R.E.M., Coldplay, og svo 80's Smiths, Pixies, Cure og "one hit wonders" tónlist.
45. Uppáhalds lög: While My Guitar Gently Weeps, Something og In My Life (allt Bítlarnir).
46. Ég nenni mjög sjaldan að lesa bókmenntir ef það er ekki mikið af húmor í þeim alla leið í gegn.
47. Ég hef lesið allar bækur Douglas Adams, Terry Pratchet (nema 3) og Dave Barry (nema 3).
48. Ég hef safnað Garbage Pail Kids spilum og Mad blöðum, engu öðru.
49. Uppáhalds leikarar eru Robin Williams, Kevin Spacy, William H. Macy, Harrison Ford (já, ennþá).
50. Ég hata hryllingmyndir og horfi aldrei á þær.
51. Ég er mjög berdreyminn og fæ Deja-Vu nokkru sinnum í viku út af því.
52. Hef staðfest nokkru sinnum að ég er skyggn (dreymdi fyrir þegar ég missti sveindóminn og kvikmyndinni Space Jam í glæ nýju Kringubíói).
53. Ég hef farið oftast á Glaumbar á djamminu.
54. Drykkur minn (fyrir utan bjór) er tvöfaldur Captein Morgan í klaka, hristur.
55. Ég hef drukkið bjór í trekkt á 2 sek, og tvo bjóra í trekkt á 7 sek.
56. Ég hef fyllt maga minn af meiri vökva en pláss er fyrir með trekktinni (7 bjórar, hálfur líter af vodkablandi og svo viðbætt líter af bjór sem veðmál í lokinn).
57. Ég hef drukkið 24 stóra bjóra og líter af Captein Morgan á einu djammi (og varð ekki þunnur).
58. Uppáhalds matur minn er blóðrauð nautalund.
59. Uppáhalds hamborgari minn er Gleym-mér-ey á Vitabar.
60. Mér finnst gott að bræða gráðost á flestan mat.
61. Ég geri (næstum) heimsins bestu ommilettur.
62. Mér finnst mjög gaman að elda fyrir annað fólk.
63. Ég er svakalegur sóði í eldhúsinu.
64. Ég er mikill hreinlætisfrík hinsvegar með sjálfan mig.
65. Ég á mjög mjög erfitt með að henda hlutum sem ég hef átt.
66. Ég geymi allar vöruumbúðir og plastpoka.
67. Ég skyrpi aldrei tyggjó á götuna eða set það annað en í ruslið.
68. Ég hef átt tvo bíla, báðir algjörar druslur.
69. Ég hef mikla ánægju að góðum mat.
70. Samt borða ég ekki sveppi né skelfisk (enga hryggleysinga) eflaust af þrjósku.
71. Helstu persónuleika gallar mínir eru þrjóska, sjálfumgleði og kæruleysi.
72. Helstu persónuleika kostir mínir eru bjartsýni, glaðmildi og að taka öllu með ró (kæruleysi).
73. Ég þrífst vel í "Chaos" þegar engin virðist geta stjórnað neinu því þá er ég oft sá eini sem gerir eitthvað rétt.
74. Það sem ég er mest ánægðastur með mig er hugmyndaflugið og útsjónarsemi.
75. Ég er mjög svo hrifinn af Íslandi og stoltur af því að vera íslenskur.
76. Ég hlusta samt ekki á íslenska tónlist, les ekki íslenskar bækur og horfi ekki á íslenska kvikmyndir.
77. Ég vill helst í lífinu verða handritshöfundur og rithöfundur.
78. Ég er að "vinna" að skáldsögu í þremur hlutum en hef ekki gert neitt síðan 2001.
79. Ég hef mjög gaman af að semja vísur en kann bara að nota ferskeytluformið (vill læra fleiri).
80. Ég hata litinn appelsínugulan.
81. Uppáhalds litur er gulur (klæðist honum aldrei, er hann bara í spilum) svo blár.
82. Ég hata tölustafina 3, 6, 9 og 18.
83. Ég elska 2, 4 og 8 og verð helst aðgera allt í þeim tölum (tvö tyggjó, fjórir kossar, átta M&M og margt fleira sem gæti litið út sem geðveiki).
84. Ég er stungufælinn (vespur og býflugur) og sprautufælinn.
85. Ég gef samt blóð á þriggja mánaðar fresti.
86. Ég hef æft Karate (3 mánuðir, 9 ára), Badmington (heilt ár, 13 ára) og Tae Kvon Do (2 mánuðir 14 ára).
87. Hef stundað líkamsrækt af og á síðan 16 ára hreyfingunnar vegna.
88. Ég hef aldrei keppt í neinni íþróttagrein og því aldrei fengið medalíu.
89. Ég hef lært á píanó (3 mánuður, 7 ára), blokkflautu (3 mánuður, 9 ára), trompet (3 mánuður, 11 ára) og gítar (3 mánuður, 13 ára).
90. Ég var með gleraugu frá ungum aldri þangað til að ég var 17 ára í Þórmörk þegar ég týndi þeim. Ég er ennþá með +2 (fjarsýni) í sjón en nota ekki gleraugu né linsur (verð samt að bæta úr því bráðum).
91. Ég elska "useless facts" og allan annan fróðleik og reyni að vita sem mest um ekki neitt.
92. Mér finnst karmellur ekki góðar og ét helst hlaup og lakkrís.
93. Ég er "hooked" á öllu 80's.
94. Ég byrjaði að blogga 16. október 2002 og finnst ég skuldbundinn til að gera það nokkrum sinnum á dag.
95. Ég þrái mjög mikið að fá góða gagnrýni á það sem ég skrifa.
96. Það má alls ekki snerta efri hluti líkama mins meðan ég er að tyggja mat því ég fæ köfnunar tilfinningu og get ekki kýngt né andað.
97. Ég er mjög heitfengur, er næstum alltaf hlýtt og geisla hita.
98. Ég er svakalegt kelidýr og knúsidýr.
99. Ég segi mjög oft vitlausa hluti.
100. Ég get eflaust gert 100 atriði í viðbót.